|
|
08.01.2007 13:05:58 / tolvunord
»
06.04.2006 12:53:10 / tolvunord
Færi mig nú yfir á http://tolvunord.blog.is
Prófa ég aftur eitthvað nýtt 
79B942C2A8D9EF516FA8C9AA63C78E55
»
27.03.2006 09:20:49 / tolvunord
Keypti mér nýjan vinnubíl fyrir 2 vikum síðan. Renault
Kangoo, gulur og flottur maður. Hann er að virka asskoti vel
bara, enda búið að vera vangefið að gera í aukavinnunni síðustu 2
vikurnar.
Svo er ég á leið til Nice í Frakklandi, 22-28 apríl.. er að fara
á DevConnections
sem er ráðstefna um nýjustu Microsoft tæknina, ASP.NET 2.0
ofl. Það verður bara gaman. Fer út á laugardegi, fæ
semsagt sunnudaginn út af fyrir mig og svo byrjar ballið á
mánudegi.
Svo er fínt að frétta af littlu fjölskyldunni minni...
»
13.03.2006 08:56:07 / tolvunord
Hvorki hættur að blogga né í átakinu... bara smá bloggleti í
gangi sko. Ég er ekki alveg jafn duglegur í ræktinni og
fyrstu 7 vikurnar, mæti samt lágmark 3svar í ræktina og í fótbolta
tvisvar í viku, þannig að þetta er nú ekki svo slæmt. Málið
er nú líka það að ég fékk svo svakalega í bakið í síðustu viku,
bæði á þriðjudegi og svo aftur á föstudegi - klemmd taug - þursabit
- eitthvað rugl.
Óli vinur gifti sig um helgina og vil ég nota tækifærið og óska
þeim hjónum aftur til hamingju með áfangann. Athöfnin og
veislan voru mjög góð... flottur matur í veislunni - kengúrukjöt,
sniglar, plokkfiskur og margt margt fleira.
Svo keypti ég mér vinnubíl í síðustu viku - Renault Kangoo -
gulur og flottur... enginn smá munur að vera kominn með
almennilegan vinnubíl, maður var farinn að skammast sín soldið
mikið þegar maður mætti heim til fólks á Nissaninum hann var alveg
að ryðga í sundur...
Annars bara fínt að frétta af Rósu og Vigni... þau skemmta sér
saman allann daginn á meðan ég er í vinnunni 
»
23.02.2006 11:07:48 / tolvunord
Nú fer sjöunda vikan í átakinu mikla að líða undir lok.
Það er skemmst frá því að segja að ég vigtaði mig í morgun og var
þá 87,5 kg. Það þýðir einfaldlega að ég á enn eftir að losa
mig við hálft kíló til að komast niður í sömu þyngd og ég var þegar
blessað átakið byrjaði, en ég er allavega kominn úr því að vera í
kringum 90 kílóin.
Síðasta vika var reyndar mjög léleg hjá mér, mætti bara
einusinni í ræktina og fór tvisvar í fótbolta... steggjunarhelgin
hans Óla skemmdi mig alveg. En núna er ég að auka við átakið
því maður er alveg hættur í kaffinu, ekkert te, ekkert kók eða
annað gos - drekk í staðinn bara meira vatn. Og svo reynir
maður að fá sér engan bjór um næstu helgi... lofa samt engu.
Svo er ég farinn að borða 4 sinnum á dag í staðinn fyrir 2 svar á
dag, bara minna í einu - það er nú heilmikil framför.
Svo er bara að sjá á mánudaginn hvernig tölurnar verða 
Lítið annað að frétta, nema hvað að Vignir er farinn að geta
velt sér af maganum yfir á bakið - sem í sjálfu sér er stórfrétt,
en það er bara komið soldið síðan hann gerði þetta fyrst og ég
hef ekkert bloggað í lengri tíma
JámmJámmJámm
»
13.02.2006 13:58:11 / tolvunord
Usssss
Fita 19,8% - síðast 20,8%
Vatn 53,3% - síðast 53,2
Ummál ??? - síðast 99,5
Þetta er náttúrulega engin frammistaða. Verð að fara að
hætta þessari helvítis drykkju allar helgar svo maður fari nú að
léttast eitthvað.
Við fórum á Indriðastaði nokkrir drengir um helgina til að
steggja hann Óla vin okkar. Þar var að sjálfsögðu vel drukkið
og étið af alskonar ógeði og guðaveigum sem fer misvel með þyndgina
á manni. Svo var maður svo þreyttur eftir þetta allt saman að
ég klikkaði meira að segja á ræktinni í morgun. Þarf að koma
mér upp einhverju refsikerfi svo átakið fari ekki til fjandans.
Komiði nú með einhverjar hugmyndir um refsingar hérna
»
09.02.2006 11:58:56 / tolvunord
Rakst á þetta og bara verð að deila því með ykkur...
http://blog.central.is/-91?page=comments&id=1471592
»
06.02.2006 09:55:44 / tolvunord
Fita 20,8% - síðast : 20,1%
Vatn 53,2% - síðast : 53,2%
Ummál 99,5 - síðast : 99,5
Ég er ekki enn kominn niður í þá þyngd sem ég var í þegar átakið
byrjaði... og nú eru 4 vikur búnar. Reyndar var aftur drykkja
núna á laugardaginn og hvert "fyllerí" eyðileggur helling
fyrir. Samt 2 kg léttari í dag en fyrir viku síðan, kannski
er þetta allt að fara að gerast núna aldrei að vita.
Samt ánægður með hvað þolið er að verða mun betra... jæja
bara
»
02.02.2006 07:57:23 / tolvunord
Líkaminn er ekkert voðalega hjálpsamur svona þegar maður er að
reyna að koma honum í fínt form. Nú þegar næstum 4 vikur eru
búnar af átakinu þá er maður farinn að finna fyrir beinhimnubólgu
þegar verið er að hlaupa á hlaupabrettinu og alla þessa viku er ég
búinn að vera með hálsbólgu sem lætur bara á sér kræla á
morgnana... allt gert til að reyna að stoppa mig en ég skal hafa
þetta ! ! !
En þetta var nú rosalegur leikur í gær, ég náði að horfa á hann
með öðru auganu á meðan ég var að slípa borðplötur í
Hafnarfirðinum. Ótrúlega ánægður með drengina þó svo að við
höfum ekki unnið þetta, mér finnst það að tapa með 1 marki á móti
heims- og ólympíumeisturum ekki svo slæmt sko . Auðvitað
hefði maður viljað vinna, sérstaklega þar sem við vorum 2 fleiri
þegar ca. 2 mínútur voru eftir... en þá missum við boltann, fáum á
okkur mark og missum mann út af í staðinn fyrir að ná að jafna...
held það hafi gert loka útslagið - stundum vantar bara smá heppni í
lið með okkur.
En þetta mót er að endurvekja trú mína á íslenska landsliðinu,
þó svo að við komumst ef til vill ekki upp úr milliriðli.
Áfram Ísland
»
30.01.2006 08:32:55 / tolvunord
Fita : 20,1 %
Vatn : 53,2 %
Ummál : 99.5
3 vikur eru búnar. Ætlunin var að komast úr 87 kg í svona
80 kg... en í staðinn er ég búinn að þyngjast um næstum 4 kg.
Nú er bara að gefast ekki upp og halda áfram, brennslan hlýtur að
fara að komast í gang svona hvað úr hverju 
Reyndar var vel tekið á í mataráti um helgina, held ég hafi
torgað 2 - 3 kílóum af mat bara í gær... og svo var náttúrulega
bjór og pizza á laugardaginn, maður getur kannski bara sjálfum sér
um kennt að þetta gengur ekki betur.
Vignir Snær er alltaf að verða mannalegri, farinn að spjalla
heilmikið við foreldrana og brosa og brosa og brosa... voðalega
hlýtur að vera gott að vera svona lítill þegar maður er ekki með
einhverja magaverki. Bara sofa, borða og leika sér - auk þess
sem hann fær þvílíka athygli allan tímann.
Á laugardaginn var tekið nördakvöld þar sem við hittumst nokkrir
félagarnir og spiluðum Ages of Empires III frá 17.00 - 12.00 og
drukkum auðvitað bjór með. Það er snilld að hittast svona
einstaka sinnum og leika sér
jæja later...
»
26.01.2006 14:01:02 / tolvunord
Þið eigið eftir að fá að éta þetta ofan í ykkur...
»
25.01.2006 12:01:52 / tolvunord
Síðasta mánudag var ummálið um vömbina á mér 100.5... best að
hafa þetta með og sjá hvort þessi tala minnki ekki all verulega á
milli vikna 
Valli karlinn stakk upp á því að við tveir myndum fara saman í
Orkuverið á morgnana fyrir vinnu. Í þessari viku er ég búinn
að ná 100% árangri, mæta þrisvar, á meðan Valli stendur fastur í 0%
árangri... þetta er rosalegt
Annars er Media Center loksins komin í gagnið... hrikalega
sniðugt tæki maður, á bara eftir að fá dagskránna til að virka, þá
get ég skoðað dagskrá vikunnar og bara valið hvaða þátt ég vil taka
upp og vélin sér um restina... svo get ég skoðað öll löglegu
afritin af þáttum og bíómyndum með farstýringu... engin leiðindi að
þurfa að tengja fartölvuna við skjáinn og nota réttann spilara og
vesen og vesen... bara eintóm gleði og hamingja. Reyndar er
skjár einn eitthvað tregur við að koma inn, en það hlýtur að takast
að lokum 
»
23.01.2006 09:41:14 / tolvunord
Fita : 18,9 % - Síðasta mæling : 21,2 %
Vatn : 54,2 % - Síðasta mæling : 52,1 %
Örugglega ekkert rosalega mikið að marka þessar prósentur... er
með vigt heima sem segir mér þetta allt saman... samt gaman að hafa
þetta með - spurning hvort maður eigi að taka ummálsmælingar
líka svona upp á djókið...
Jahá, bara búinn að þyngjast um 2 kíló á einni viku... alltof
góður matur í vinnunni greinilega. Nei, annars er þetta
eðlilegt hjá mér, alltaf þegar ég fer í átak byrja ég á að þyngjast
aðeins, nú er bara að halda þetta út og gefast ekki upp - ef ég næ
að halda út næstu 2 vikurnar þá fer ég loks að sjá einhvern
árangur. Svo las ég líka einhversstaðar að fita sé mun
léttari en vöðvar, auk þess að hún tekur meira ummál. Er
semsagt að massast svona hrikalega upp 
Sumir sem heita Valli eru ekki að standa sig alveg nógu
vel. Mætti ekki í morgun, ekki á föstudaginn, ekki á
mánudaginn í síðustu viku osfrv... En þá verð ég bara miklu meira
fit en hann... múahahahahahaha
Helgin var ótrúlega góð, gerðum ekkert á laugardaginn, og næstum
því ekkert á sunnudaginn. Fórum bara í smá bíltúr í gær,
ekkert lengi, ætluðum að kíkja í barnabúðir en þær voru bara
lokaðar svo að við keyptum okkur óhollustu til að éta og fórum
aftur heim 
»
17.01.2006 08:17:59 / tolvunord
Nú erum við Valli komnir í Orkuverið og þá er nú ástæða fyrir að
láta ykkur vita reglulega hvað ég er léttur. Við reyndar
byrjuðum á mánudaginn í síðustu viku, en ég gleymdi að vigta mig
fyrir það og því byrjum við átakið í 87 kg í dag 17 janúar og svo
ætla ég að setja þyngdina inn á hverjum mánudegi. Nú skal
komist niður í 80 kg.
En já við erum sumsagt í Orkuverinu kl. 06.00 á morgana mánudag
- fimtudag, svo er ég í fótbolta á þriðjudögum og fimtudögum,
jafnvel á föstudögum, og svo er körfubolti líka á fimtudögum.
Ég ætti allavega að vera að fá góða hreyfingu núna !
Svo erum við Rósa að reyna okkar besta til að hætta í
ruslfæðinu, og það gengur nú bara furðulega vel, miðað við hvað við
vorum dugleg að éta skyndibita síðustu 2 mánuði.
Annars er allt gott að frétta af Vigni Snæ... við feðgarnir
áttum quality time saman um helgina þar sem Rósa var á
ljósmyndunarnámskeiði bæði á laugardag og sunnudag og fór svo að
hitta vinkonur sínar á laugardagskvöldi. Hún má nú líka fá
smá frí greyið. En við höfðum það mjög gott fyrripart dags,
þar sem drengurinn svaf ca. 3 tíma bæði laugardag og sunnudag, en á
laugardagskvöldið voru menn eitthvað ósáttir við að ég skuli ekki
hafa kvenmannsbrjóst og var orgað vel á hann pabba sinn þangað til
mútta kom heim!
Nú er maður kominn aftur í vinnuna semsagt, og nóg að gera eftir
mánaðarfrí. Væri alveg til í að vinna í 2 vikur og fara svo
aftur í mánaðarfrí en efast um að slíkt væri vel séð .
Verð víst að bíða með meira frí fram til páska. En ég á eftir
að taka í frí á þessu ári, mánuð í sumarfrí og einn og hálfan mánuð
í feðraorlof, búinn að vera 2 vikur á þessu ári - semsagt ca 1/5 af
árinu fer í frí hjá mér 
»
08.01.2006 12:08:35 / tolvunord
...já, eftir tónleikana í gær sem voru haldnir í Laugardalhöll
þá er ég að verða náttúrulaus. Tónleikarnir sem haldnir voru
gegn virkjunum og mengun voru í íþróttahúsi, þar sem alla jafna
engum myndi detta í hug að reykja, en þrátt fyrir það þá angaði
maður eins og öskubakki sem hefur verið migið í eftir
tónleikana. Ég eiginlega trúði ekki eigin augum þegar fólk
allt í kring kveikti í eiturstubbunum sínum. Það var verið að
berjast gegn mengun, berjast fyrir hreinu íslandi og svo var maður
að kafna þarna inni úr helvítis eiturrreyk.
Fyrir utan þennan stóra mínus þá voru hljómsveitirnar sem mættu
á svæðið bara helvíti góðar og stóðu sig flestar bara allvel.
Múm, Rass, Ham, Egó, Mugison, Damien Rice, Hjálmar og meira að
segja Magga Stína var bara helvíti góð. Það var eitt atriði
sem eyðilagði soldið upplifunina fyrir mér og það var Ghostigital -
Miðaldra menn að reyna að vera eitthvað hipp og cool og mistókst
það algjörlega. 2 menn að dj-ast, einn söngvari sem hoppaði
um sviðið eins og geðsjúklingur, ca. 10 ára strákur á horni og
gítarleikari. Var vægast sagt súrt, og því miður var þetta
lengsta einstaka atriðið um kvöldið. Atriðið endaði svo með
samsöng Geðsjúklingsins og Damon Albarn - sem var bara ekki upp á
marga fiska. Ham og Egó komu svo í kjölfarið og rifu salinn
upp aftur.
Við Rósa skemmtum okkur mjög vel, þó að maður hafi verið kominn
með soldið illt í bakið eftir að hafa staðið í 6 tíma... þetta var
svona í lengra lagi allt saman, enda margir listamenn sem þurftu að
komast að.
Jójó...
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
|